Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Anna Lára
Anna Lára

vetur 11-12

0 | 0 | 9.4.2012 17:49:04 #

Það er langt síðan ritati minn gaf sér tíma til að skrifa hérna síðast.

Ég er búin með 1. bekk, fyrsta skólaárið gekk mjög vel.

Ég náði strax góðum tökum á námsefninu, sérstaklega lestrinum. Í sumar var ég svo dugleg að lesa á hverjum degi til að æfa mig að lesa. Ég fór tvisvar í sumarbúðir og nokkru sinnum í heimsókn til pabba, krissu mömmu og systra minna þar. Mér finnst æðislegt að eiga svona margar systur og er Thelma í miklu uppáhaldi hjá mér.

Mikil spenna fór að myndast hjá mér þegar líða tók á júlí, mér fannst sumarfríið óþarflega langt og vildi bara komast í skólann að læra meira, síðasta vika var því alger hamingja og fer ég beint að læra um leið og ég kem heim, les heila bóka á hverjum degi, þær eru mismunandi langar alveg frá 40 bls upp í 70 bls. Mömmu finnst að ég sé að flýta mér óþarflega mikið en eitthvað er ég lík mömmu því hún þarf líka að gera allt strax í gær ;)

0 | 31.8.2011 08:36:16 #

Ágúst og haust 2011

0 | 0 | 31.8.2011 08:35:14 #

Sumar 2011

0 | 0 | 9.7.2011 01:05:19 #

Sumarbúðir

0 | 0 | 9.7.2011 01:02:29 #

Fyrri partr 2011

0 | 0 | 11.3.2011 09:08:11 #

Ég er byrjuð í skóla.

Á mánudaginn fór ég í skólann að hitta kennarann og fá stundatöfluna. Ég spjallaði smá við hana og svo fengum við mamma upplýsingar um veturinn.

Þegar heim kom fór mamma að ræða við mig um það sem er framundan í vetur, hún meðal annars sagði mér það að svo á miðvikudaginn myndi skólinn byrja af alvöru og þá ætti ég að mæta með töskuna, nesti og bækurnar.

Ég horfði á hana og sagði "til hvers? ég er búin að fara og hitta kennarann"

En ég fór nú svo reyndar í skólann í dag því dagurinn í dag er fyrsti skóladagurinn minn. Ég var rosalega dugleg og stóð mig eins og hetja. En ég spurði víst kennarann minn um 11 leitið í morgun "Kennari, af hverju þurfum við að vera svona lengi í skólanum? er þetta ekki komið gott?"

Mér finnst sem sagt skólinn allt of langur. Við mamma fórum svo og kíktum í Tígrisbæ en þar verð ég eftir skóla. Mér leist vel á þetta en var samt alveg til í að fara heim, enda orðin þreytt. Við þurftum reyndar að fara og kaupa kósý púða sem við erum með í skólastofunni.

 

Við skelltum okkur því í rúmfatalagerinn og keyptum kodda, ég fékk svo að velja mér koddaver og valdi rosalega flott koddaver, það er svart með hauskúpum :)

 


0 | 25.8.2010 17:48:57 #

Seinni partur 2010

0 | 0 | 25.8.2010 17:39:42 #
hæhæ Anna mín til hamingju með afmælið og vonadi áttu góðan dag kær kv Gunna netvinkona mömmu
Gunna/Lillyann af er.is | 0 | 6.8.2010 01:36:54 #

Veiðidagur

0 | 0 | 16.5.2010 02:12:10 #
Mamma verður að fara verða duglegri að kvitta, en við kíkjum samt reglulega á myndirnar ykkar :))) við verðum að fara hittast og leika saman kveðja Björn Þór og allir hinir
Björn Þór Gerðar Ásmundsson | 0 | 29.3.2010 17:40:07 #

Loksins eru komnar nýja myndir af mér :) mamma frekar léleg í þessu enda alltaf nóg að gera hjá okkur. Ég er á fullu allan daginn í leikskólanum og svo beint í æfingar sund og fimleika. Það gefst því ekki mikil tími til að henda inn myndum eða skrifa fyrir mig. En þetta stendur til bóta eins og alltaf :D

Í ferbrúar fékk ég ásamt systrum mínum að vera í heila viku hjá ömmu og afa, það var alls ekki slæmt, var dekruð út í eitt og naut mín því vel.

 

Ég vil nú samt helst vera ein hjá þeim því hjá þeim get ég slappað af og verið í rólegheitum þau eru friðar athvarfið mitt :)

 

Ég get ekki beðið eftir því að byrja í skólanum í haust, liggur við að ég sé farin að telja niður.

Eins og sést á mynundum þá er mitt helsta áhugamál alltaf tengt hreyfingu og einhverju allt öðru en sitja leikjum, eins og er eiga byssur og línuskautar hug minn allann ;)

0 | 29.3.2010 01:46:48 #

Fyrri partur 2010

0 | 0 | 29.3.2010 01:27:55 #

Forsíða


0 | 12.3.2010 01:59:07 #

Ár frá ári

 

 

 

 

0 | 12.3.2010 01:55:02 #

falleg orð




Mamma er konan

Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd
þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt
og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta konan í heimi!!!



Pabbi er maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og
annað fólk.

Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

Pabbi er besti maðurnn í heimi



Elsku mamma og pabbi!

Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar,svo að ég geti fylgt þér eftir.

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.

Horfu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar.
Ekki vera alltaf að skamma mig,leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða
rúmið sem að ég bý um verði fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.

Munda að ég er bara barn,en ekki fullorðin vera.
Stundum skil ég ekki það sem þú segir.

Ég elska þig svo mikið.
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir það sem ég geri.
0 | 12.3.2010 01:54:39 #
0 | 12.3.2010 01:53:22 #

Fæðingarsagan mín

Ég átti að koma í heiminn 11 sept samkvæmt sónar.

En ég var ekkert á því að láta stjórna mér.

Þanig að ég ákvað að koma fyrr, vildi ekki taka neinna áhættu á því að eitthver færi að stjórnast í mér með því að gangsetja mömmu eða eitthvað ;)

Mamma missti vatnið aðfarnótt fimmtudags 5 ágúst, hún vaknaði við hvell og svo varð rúmið bara rennblaut. Mamma hringdi upp á fæðingardeild og talaði við lækni þar, hann var ekkert svo viss um að mamma hefði verið að missa vatnið þar sem mamma var bara komin rúmlega 34 vikur á leið. En sagði henni samt að koma í skoðun. Mamma hringdi því í ömmu og bað hana um að keyra sig á spítalann. Amma var fljótt að koma.

Á spítalanum var mamma skoðuð og það var staðfest að þetta væri legvatnið sem væri farið, mamma var því lögð inn og sagt að hún yrði að vera á spítalanum fram að fæðingu, sem ekki væri hægt að vita hvenær yrði, um morguninn var mamma sett í sónar til að skoða mig og sjá hvað ég væri orðin stór áætlað var að ég væri um 10 merkur. Pabbi kom svo strax um morguninn og satt hjá mömmu allan daginn ef ske kynni að hún færi að stað með mig. En ekket bólaði á hríðum eða verkjum svo engin var að stressa sig.Pabbi fór svo heim um 10 um kvöldið því mamma ætlaði að leggja sig.

Klukkan rúmlega 1 um nótt vaknaði mamma með þvílíka verki, og vissi hún að nú færi ég
að koma. Mamma labbaði fram og talaði við ljósuna sem skoðaði mömmu og staðfesti það að ég væri að koma. Mamma hringdi því í pabba og ömmu og bað þau um að koma, því ég ætlaði mér að koma núna og sjá þau. Þau voru mjög fljótt að koma.

Mamma var með mjög harðar hríðar, og fékk hún enga hvíld á milli þeirra. Klukkan 2 var mamma 3 í útvíkkun. Klukkan 3 var mamma 4 og klukkan 3.45 var mamma komin með fulla útvíkun. Mamma byrjaði þá að rembast við að koma mér í heiminn, hún var samt ekkert að flýta sér, vildi ekki leggja og mikið á mig, né rifna. Mamma beið því 2 kollhríðar með það að ýtta mér endanlega í heiminn. Og svo ýtti hún fast. Ég km öll út í einu, ekki bara hasuinn fyrst heldur kom allur búkurinn með :) svo mikil var asinn á mér að ég dók kollhnís við komuna í heiminn. Ég fór strax að gráta og fannst mömmu,pabba og ömmu það vera það fallegast sem þau höfðu heyrt. Pabbi klippti svo strenginn og ég var tekin og skoðuð, pabbi fékk svo að halda á mér smá,svo amma og svo fékk mamma mig aftur í smá stund.Ég fékk mjög góða einkunn eða 9 á apgar fyrstu mín og 9 á 5 mín. Ég var ekki stór, var 44 cm og 2485 gr, höfðumál mitt var 33.5

En svo varð að rjúka með mig á vökudeildina því ég er fyrirburi, þar þurfti ég að vera í 6 daga, en fékk aldrei súrefni eða neitt var svo hraust stúlka. Var bara svona lengi því ég var með gulu.

 

0 | 12.3.2010 01:52:46 #

Afmælisdagur minn

PERSÓNULEIKI:

Þú ert skemmtilegur persónuleiki og aðlaðandi og fólk hópast að þér vegna einstæðar kímnigáfu þinnar. Þér líkar að heyra fólk hlæja og reynir stöðugt að hressa niðurdregna vini við. Þú lítur ávalt á björtu hliðarnar og ert í eðli þínu bæði ástríðufull og hlý manneskja.

 

LÍFSBRAUTIN:

Þú ert sannkölluð mannvinur og gefur meira en þú þiggur. Þú ert létt í lund og djúp og virðingeverð sál sem sækisdt eftir að vera öðrum gleðigjafi. Þú hefur heilmikla rithöfundarhæfileika og ert fær um að finna svör við ráðgátum lífsins og koma þeim á pappír.

 

ÁSTIN:

Þú ert alltaf að hjálpa öðrum að greiða úr ástarmálum og ert iðulega í símanum að veita vinum þínum ráð. Þitt eigið ástarlíf situr á hakanum en ástrík sál eins og þú átt aðeins skilið það besta. Vogin hentar þér en ríkjandi pláneta hennar er Venus pláneta ástarinnar, sama pláneta og stjórnar degi þínum.

 

ÓSKAGJÖFIN:

Rómantískur málsverður fyrir tvo og slakandi nudd.

 

SAMI AFMÆLISDAGUR:

Hulda (Unnur Benedikstdóttir Bjarkalind ) rithöfundur og ljóðskáld ( 1881 ) Andy Warhol listamaður og leikstrjóri ( 1928 ) Dagur Sigurðarson skáld ( 1937 )

 

ÞETTA GERÐIST:

Árið 1945 vörpuðu Bandaríkjamenn atómsprengu á japönsku borgina Hirosíma.

 

LITUR: Bleikur TÖLUR: 15, 24, 33 STEINN: Rósakvars-færir þér skilyrðislausa ást JURT: Dalía DÝR: Pokabjörn STARF: Hjónabandsráðgjafi, skemmtikraftur,ljóðskáld SÉRKENNI: Kímnigáfa, greind, hjarthlýja. SNILLINGUR Í: Að veita tilfinningalegan stuðning

0 | 12.3.2010 01:52:20 #

upphafið

Mamma var farin að halda að hún væri ýmindunarveik, hún hafði það svo sterkt á tilfiningunni að hún væir ólétt, samt var meira en vika þanngað til hún átti að byrja á túr.

 

31 dec: 2003:Mamma ákvað að gera óléttu prufu, þó hún ætti ekki að bryja fyrr en eftir 4 daga, hún varð strax jákvæð. Mamma fékk smá sjokk, ég var nefnilega ekki plönuð. En daginn eftir var hún búin að jafna sig á sjokkinu og orðin hæst ánægð með tilkomum mína.

8 jan : 2004:Það fór að blæða hjá mömmu, mamma fékk að koma upp á landsann í skoðun, þá sást ég og tvíburi minn, en engin hjartsláttur var samt komin, læknirinn gat ekki séð hvaðan það blæddi en sagði mömmu að koma aftur eftir viku. Mamma kom svo aftur viku seinna og þá sást hjartsláttur minn en ekki neinn hjá tvíbura mínum,læknirinn taldi að það blæddi vegna þess að tvíburi minn væir að fara :( Það blæddi vegna þess fram yfir 10 viku.Mamma fór nokkuð oft í sónar þetta tímabil.

 

26 feb : 2004: Mamma fór í 12 vikna sónar, og hnakkaþykktarmælingu, allt kom ljómandi vel út þar og sprikaði ég heil mikið fyrir alla viðstadda. Mamma fór í sömu vikunni í sína fyrstu mæðrskoðun.

20 mar : 2004: Mamma fann fyrstu spörkin, og hætti ég ekki að sparka eftir það, ég sparkaði mest ef tónlist var í gangi. Og líka var ég sérvitur með spörkin, yfirleit fékk engin nema mamma og pabbi að finna þau :)

 

28 apr :2004: Mamma fór í 19 vikna sónarinn, ég var reyndar orðin aðeins eldri en 19 vikna ;) allt kom vel út þar og fengu viðstaddir að vita að ég væri stelpa :D það var sko það eina sem ég sýndi almennilega, var á fleigiferð allan tímann.

 

14 júní : 2004: Mamma fór að fá samdrætti, þær áttu eftir að koma oft og reglulega frá og með þessum degi, enda lá mér á að koma í heiminn. Í fyrstu var talið að þetta væri vegna klemmdrar tauga í fætinum á mömmu, en svo kom í ljós að þetta voru fyrirvara hríðar.

 

27 júlí : 2004: smá legvatn fór líklega að leka, mamma fór í bað áður en hún fór að láta skoða þetta og því var ekki hægt að staðfesta það að þetta væri legvatn.

 

6 ágúst: 2004: ég fæddist, ég var strax spræk og hress, en vegna þess að ég var fyrir tímann varð ég að fara í hita kassa, ég var í honum vegna gulu í 6 daga svo fékk ég að fara heim.

19 ágs: 2004: ég held höfði :D

 

25 ágs : 2004: ég brosti í fyrsta sinn, mamma var sú heppna :)

 

14 sept: 2004: ég fór að hjala á fullu, alger blaðrari.

16 sept:2004: ég reisi mig upp á olngbogana

21 okt: 2004: veltir ég mér á magan í fyrsta sinn :D

22 okt:2004: ég hló í fyrsta sinn, var að hlæja af Alexöndru

3 nóv:2004: ég var flutt á spítala vegna þess að ég hætti að anda :( mamma kom sem betur fer að mér áður en það var og seint og bjargaði það lífi mínu.:)

7 nóv: 2004: var ég skírð, en það var nú samt búið að nefna mig áður :)

18 nóv:2004: ég lærði að slá vísvitandi í dótið mitt :)

15 jan:2005: ég byrjaði í ungbarnasundi

21 jan:2005: ég fékk graut í fyrsta sinn, fannst hann bara annsi góður :)

23 jan: 2005: ég sit án stuðnings, alveg alein, alger hetja

25 jan:2005: ég velti mér á magann :)

28 jan:2005: ég klappa saman höndunum :)

28 feb:2005: kom fyrsta skiljanlega orðið mitt, þau voru babba ( pabbi) og æddu ( hættu) fljótlega eftir það fór að koma mamma, nanna, namm og svo auðvitað nei, en ég er nú búin að segja það orð mjög lengi ;)

23 mars:2005: ég stóð upp og gekk með í fyrsta sinn :)

5 apr:2005: ég fékk fyrstu tönnina, hún kom í neðri góm hægra meigin

15 apr:2005: tönn númer tvo kom, í neðri góm vinstra meigin

23 apr:2005: ég fékk fyrsta hláturskastið mitt :) hló stanslaust í langan tíma, var lengi að tísta eftir á

2 maí:2005: ég skríð út um allt

14-16 maí:2005: ég fór í mitt fyrsta ferðalag og mína fyrstu sumarbústaða ferð, ég fór með vinum mínum úr ágúst hópnum og skemmti ég mér kónunglega :D

12 jún:2005: ég labba út um allt, með því að vera bara leidd með annari hendi í stað beggja :)

30 jún:2005: Ég fékk mína þriðju tönn, hún kom niður í efri góm hægra meigin.

 

Verslunarmannahelgin: Fyrsta verslunarmannahelgin mín, ég, mamma og pabbi fórum í Galtalæk ásamt góðum vinahóp og ættingjum, allir skemmtu sér vel þessa helgi þó veðrið væri ekki upp á það besta.

 

6 ágúst: 2005: Ég varð 1 árs fyrsta afmælisveislan mín var haldin heima hjá Ástu ömmu, mamma og pabbi fóru með mig og vinir og ættingjar pabba komu færandi mér góðar gjafir. Helgina eftir hélt mamma veislu heima hjá ömmu og afa þá komu en fleiri vinir og ættingjar:)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

0 | 12.3.2010 01:52:16 #